Dregið var í morgun í riðla í lokakeppni Evrópumóts U19 ára landsliðs kvenna sem fram fer í Svartfjallalandi dagana 9.-20.júlí.

Drátturinn fór fram í Vín en 24 lið tryggðu sér þátttökurétt á Evrópumótinu. Ísland var í þriðja styrkleika og dróst með silfurliði Danmörku frá seinustu heimsmeistarakeppni, heimakonum í Svartfjallalandi og Litháen.

Drátturinn í heildsinni er eftirfarandi :  

  • A-riðill : Ungverjaland, Tékkland, Norður Makedónía, Pólland.
  • B-riðill : Danmörk, Svartfjallaland, Ísland, Litháen.
  • C-riðill : Serbía, Svíþjóð, Sviss, Finnland.
  • D-riðill : Þýskaland, Rúmenía, Spánn, Færeyjar.
  • E-riðill : Frakkland, Noregur, Portúgal, Slóvenía.
  • F-riðill : Króatía, Holland, Austurríki, Tyrkland.

Efstu tvö liðin í hverjum riðli tryggja sig áfram í milliriðlana. Í milliriðlunum eru það einnig efstu tvö liðin sem tryggja sig áfram í 8 liða úrslit ásamt þeim tveimur liðum sem bestum árangri ná í þriðja sætinu.