Í síðustu viku var dregið í riðla í Evrópumeistaramót U17 og U19 landsliða kvenna (B deild).
U17 ára landslið kvenna dróst í A riðil en leikið verður á Ítalíu 3.-11. Ágúst en riðilinn má sjá hér að neðan.
U17 landslið kvenna:
Tékkland
Tyrkland
Ísland
Kosóvó
Ísrael
U19 ára landslið kvenna dróst í A riðil sem leikinn verður í Búlgaríu 13.-21. Júlí en riðilinn má sjá hér að neðan.
U19 landslið kvenna:
Serbía
Bulgaría
Ísland
England
Grikkland