Dregið var í riðla í gær á heimsmeistaramóti U21 árs landsliða sem fram fer í Póllandi dagana 18.-29.júní.
Drátturinn fór fram í Osló og dróst Ísland í F-riðil ásamt Norður Makedóníu og Rúmeníu. Óákveðið er hinsvegar hvert fjórða landsliðið í riðlinum verður en samkvæmt Alþjóða handknattleikssambandinu er ekkert lið frá Eyjaálfu sem annars hefði átt rétt á þessu sæti. IHF mun því fylla fjórða sætið í riðlinum með boðskorti-IHF.
Ísland var í efsta styrkleikaflokki og mun leika sinn riðil í Katowice. Drátturinn í heildsinni var eftirfarandi :
A-riðill : Noregur, Pólland, Slóvenía, Úrúgvæ.
B-riðill : Austurríki, Ungverjaland, Argentína, Brasilía.
C-riðill : Svíþjóð, Japan, Suður Kórea, Bandaríkin.
D-riðill : Portúgal, Króatía, Alsír, sigurlið IHF-bikarsins.
E-riðll : Danmörk, Frakkland, Marokkó, Mexíkó.
F-riðill : Ísland, Norður Makedónía, Rúmenía, boðskort-IHF.
G-riðill : Þýskaland, Túnis, Serbía, Sviss.
H-riðill : Spánn, Egyptaland, Barein, Sádi Arabía.