Dregið var í dag í riðla í lokakeppni Evrópumóts U17 ára landsliðs kvenna sem fram fer í Svartfjallalandi dagana 30.-10.ágúst.

Ísland dróst í hörkuriðil en ásamt Íslandi eru Holland, Færeyjar og Sviss sem sigruðu Opna Evrópumótið síðastliðið sumar.

24 lið tryggðu sér þátttöku í Evrópumótinu en riðlarnir eru eftirfarandi :  

  • A-riðill: Danmörk, Svíþjóð, Spánn, Tyrkland.
  • B-riðill: Þýskaland, Portúgal, Norður-Makedónía, Slóvakía
  • C-riðill: Holland, Ísland, Sviss, Færeyjar
  • D-riðill: Ungverjaland, Noregur, Serbía, Slóvenía
  • E-riðill: Frakkland, Svartfjallaland, Tékkland, Litháen
  • F-riðill: Króatía, Rúmenía, Austurríki, Pólland

Efstu tvö liðin í hverjum riðli tryggja sig áfram í milliriðlana. Í milliriðlunum eru það einnig efstu tvö liðin sem tryggja sig áfram í 8 liða úrslit ásamt þeim tveimur liðum sem bestum árangri ná í þriðja sætinu.