Vefverslun | Nýja landsliðstreyjan uppseld í flestum stærðum
Það má segja að nýja landsliðstreyjan hafi fengið ævintýralegar móttökur undanfarnar vikur og hefur salan á henni farið fram út björtustu vonum.
Sem stendur eru aðeins 2 stærðir til í vefverslun HSÍ, XL kvenna og XXL kvenna. Aðrar stærðir eru uppseldar.
Ekki koma fleiri treyjur til landsins fyrir HM en von er á sendingu til Svíþjóðar og verður hægt að kaupa hana þar sem stuðningsmenn okkar hita upp fyrir leikina á HM.
Þetta verður nánar auglýst þegar nær dregur.