Vefverslun HSÍ | HM treyjan kemur í vikunni
Við fengum þær fréttir í dag að nýja landsliðstreyjan er lögð af stað til Íslands.
Sala á treyjunni hefst í vefverslun HSÍ á fimmtudaginn en fyrstu treyjurnar verða afhentar í hádeginu mánudaginn 19. desember.
Treyjan mun koma í karla-, kvenna- og barnastærðum, þeim sömu og hafa verið undanfarin ár.
Útlit treyjunnar og salan verður betur kynnt á miðlum HSÍ í vikunni.