Nú á dögunum tók Snæfellsbær þátt í alþjóðlegri íþróttaviku Evrópu og efndu því til “Heilsudaga Snæfellsbæjar”
Vonir standa til að stofnuð verði handknattleiksdeild í Snæfellsbæ á næstunni og tók HSÍ þátt í Heilsudögunum með því að senda unglingalandsliðsþjálfara til að sá um æfingar fyrir yngstu iðkendur.
Afrakstur dagsins má sjá á meðfylgjandi myndskeiði
Við vonumst að sjálfsögðu eftir að Snæfellsbær muni á komandi tímum senda lið til þátttöku í yngri flokkum.
Áfram handbolti!