Útbreiðsla | Handboltanámskeið fyrir einstaklinga með sérþarfir
Viska Símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja stóð í vikunni fyrir námskeiði í handboltareglum fyrir einstaklinga með sérþarfir. Námskeiðið var þátttakendum að kostnaðarlausu en Fjölmennt veitti styrk til verkefnisins.
Leiðbeinendur voru þeir Bergvin Haraldsson handknattleiksþjálfari og Sindri Ólafsson eftirlitsmaður og dómari á vegum HSÍ. Námskeiðið var í tveimur hlutum, annars vegar fór það fram á handboltaæfingu hjá Ægi íþróttafélagi fatlaðra í Vestmannaeyjum þar sem farið var yfir helstu grunnreglur í handbolta og gerðar æfingar til að auka meðvitund um reglurnar.
Seinni hlutinn fór fram á mjúkboltamóti sem haldið var með iðkendum Ægis og drengjum í 4. flokki ÍBV. Þar fengu leikmenn Ægis leiðbeiningar á meðan mótinu stóð og þótti takast vel til. Ægir er eina íþróttafélag fatlaðra á Íslandi sem heldur úti reglulegum handboltaæfingum en æfingarnar hafa staðið síðan í haust. Langtíma markmið Ægis er að senda lið til þátttöku á mótum erlendis.