Umhverfisstefna HSÍ
Stjórnendur HSÍ leggja áherslu á að sambandið gæti að hlutverki sínu sem ábyrgur aðili í samfélaginu. Hluti af því er að tryggja að sambandið umgangist umhverfi sitt af virðingu og umhyggju og því hafa þeir einsett sér að:
- Tryggja starfsmönnum heilsusamleg og örugg starfsskilyrði.
- Velja við innkaup á vöru og þjónustu umhverfisvæna, umhverfismerkta og/eða endurunna vöru þar sem því verður við komið.
- Vinna með umhverfisvottuðum birgjum sem draga úr myndun úrgangs og stuðla að endurnýtingu og endurvinnslu hans.
- Halda orkunotkun í lágmarki og leitast við að draga úr mengun í starfsemi sambandins.
- Senda ónýtan rafeindabúnað og rafhlöður í förgun.
- Hvetja til endurvinnslu pappírs.
- Hvetja til flokkunar á rusli.
- Vinna með allar ábendingar og atvik sem gætu hafa valdið mengun í ábendingarkerfi svo nýta megi þær upplýsingar til markvissra forvarna.
- Að draga úr pappírsnotkun í starfsemi félagsins, m.a. með því að nota pappírslaus viðskipti þar sem það er mögulegt.
- Miðla upplýsingum og fræðslu til starfsmanna.
- Tryggja að öllum lagakröfum á sviði umhverfismála sé fullnægt og settar séu strangari kröfur þar sem við á.
Ábyrgð
Uppbygging, framkvæmd og viðhald stefnunnar er á ábyrgð eftirtalinna aðila:
- Formaður HSÍ ber ábyrgð á stefnu þessari
- Stjórn sambandsins staðfestir stefnuna að lágmarki annað hvert haust
- Endurskoðun
- Stefna þessi er endurskoðuð að lágmarki annað hvert haust af stjórn HSÍ. Niðurstöður endurskoðunarinnar eru skjalaðar í fundargerð stjórnar. Endurskoðun getur þó átt sér stað oftar eða eins og þurfa þykir í takti við breytingar á hverju sinni.