Ísland mætti í dag liði Argentínu í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Heimsmeistaramóts U-21 í Alsír.
Ísland sigraði 36-27.
Ísland er því komið með 2 stig í D riðli keppninnar og fara vel af stað.
Nokkuð jafnræði var á með liðunum í upphafi leiks og var staðan 4-4 eftir 8 mín.
Þá kom mjög góður kafli hjá íslensku strákunum sem skoruðu 6 mörk í röð og breyttu stöðunni í 10-4.
Svipaður munum var á liðunum út hálfleikinn og í hálfleik leiddi Ísland 19-12.
Í seinni hálfleik róteruðu íslensku þjálfararnir liðinu mikið og spiluðu allir útileikmenn.
Svipaður munur hélst á milli liðanna. Eftir 40 mínútna leik var staðan 29-16 og eftir 50 mínútna leik var staðan 29-23.
Strákarnir gáfu þó nokkuð í á loka mínútunum, lokatölur 36-27 og frekar þægilegur sigur Íslands staðreynd.
Næsti leikur er morgun kl 15:00 á móti Sádi Arabíu.
Markaskorarar:
Elvar 9, Óðinn 7, Ómar 4, Sigtryggur 3, Ýmir 3, Arnar 2, Elliði 2, Hákon 2, Birkir 1, Þorgeir 1, Dagur 1, Kristján 1,
Markvarsla:
Grétar 6 (29%)
Viktor 2 (14%)
Nánari upplýsingar um leikinn má finna á heimasíðu EHF.
Fylgist endilega með okkur á
Facebook,
Twitter og
Instagram.
Þá eru strákarnir með Snapchat, u96.strakarnir
Myndir frá IHF