Það verður sannkölluð handboltahátíð í Vestmannaeyjum dagana 22. – 25. mars.

Þá mun U-20 ára lið kvenna (f. 1998 og síðar) mæta til leiks í undankeppni HM 2018 og etja kappi við Þýskaland, Makedóníu og Litháen í hörkuleikjum.

Sigurvegarinn tryggir sér farseðil á HM í Ungverjalandi sem fram fer 1. – 15. júlí.

Í íslenska liðinu eru efnilegustu handboltakonur landsins sem margar hverjar hafa slegið í gegn í Olísdeildinni. Þjálfarar íslenska liðsins eru margreyndir afreksþjálfarar, þau Stefán Arnarson og Hrafnhildur Skúladóttir.

Að sögn þjálfara liðsins er mikið gleðiefni að fá að halda keppnina í Vestmannaeyjum sem gerir möguleika liðsins á móti sterkum andstæðingum meiri en minni. Þýskaland og Makedónía voru bæði í lokakeppninni á síðasta Evrópumóti sem haldin var í Slóveníu, þar hafnaði hið geysisterka þýska lið í 5. sæti en Makedónía í 16. sæti. Það er ljóst að við ramman reip er að draga en með stuðningi áhorfenda í Eyjum er allt hægt.

 

Tímasetningar leikja verða eftirfarandi:


23. mars.

Þýskaland – Litháen kl. 17.00.

Makedónía – Ísland kl. 19.00.

 


24. mars.

Litháen – Makedónía kl. 14.00.

Ísland – Þýskaland kl. 16.00.

 


25. mars.

Makedónía – Þýskaland kl. 10.30.

Ísland – Litháen kl. 12.30.