U-16 ára landslið Íslands tapaði fyrir Ungverjum 24-28 á æfingamóti í Póllandi í dag, staðan í hálfleik var 15-18. Þetta var þriðji og síðasti leikurinn og tapaði íslenska liðið þeim öllum með litlum mun. Þetta eru fyrstu landsleikirnir hjá þessum efnilegu strákum sem koma reynslunni ríkari heim. Á morgun mun liðið fara til Berlínar þar sem það mun spila tvo leiki á móti unglingaliði Fusche Berlin.
Markaskorarar:
Markús Björnsson 5
Friðrik Hólm 4
Jóhann Kaldal Jóhannsson 4
Sveinn Jóhannsson 3
Logi Snædal Jónsson 2
Arnar Freyr Guðmundsson 2
Gísli Þorgeir Kristjánsson 2
Darri Gylfason 2