Í kvöld spilaði A-landslið kvenna vináttulandsleik við Svía. Lokatölur urðu 26-31 fyrir Svíþjóð. Staðan í hálfleik var 11-17 fyrir Svía. Jafnræði var með liðunum í byrjun en síðan sigu Svíar framúr. Seinni hálfleikur var betri hjá okkar stúlkum og náðu þær að minnka munin niður í 3 mörk í stöðunni 24-27. En lokasperetturinn var þeirra sænsku. Í þessum leik voru 3 nýliðar sem spiluðu og komust þær allar vel frá sínu.
Markarskor var eftirfarandi:
Birna Berg Haraldsdóttir 6 mörk
Ramune Pekarskyte 4 mörk
Brynja Magnúsdóttir 4 mörk
Arna Sif Pálsdóttir 3 mörk
Unnur Ómarsdóttir, Steinunn Hansdóttir, Ragnheiður Júlíusdóttir allar með 2 mörk
Rut Jónsdóttir sem var fyrirliði Íslands í þessu leik skoraði 1, eins og Sunna Jónsdóttir og Guðrún Ósk Maríasdóttir markmaður..
Í markinu byrjaði Florentina Stanciu og varði 4 bolta, þarf af eitt víti, þá kom Guðrún Ósk Maríasdóttir og varði 14 bolta þar af eitt víti.
Liðið leikur aftur við Svía á laugardaginn 11. október í Skövde kl. 17.15 að íslenskum tíma.