Strandhandbolti á unglingalandsmóti
Keppt verður í Strandhandbolta á Unglingalandsmótinu í Þorlákshöfn.
Nýr völlur var settur upp sérstaklega fyrir mótið.
Unglingalandsmótið verður um Verslunarmannahelgina, 3. – 5. ágúst n.k. og fer keppni í Strandhandbolta fram á laugardeginum. Allir á aldrinum 11 – 18 ára geta skráð sig.
Skráning fer fram á heimasíðu UMFÍ undir liðnum Unglingalandsmót.
Síðasti dagur til að skrá sig er mánudagurinn 30. júlí.
Strandhandbolti er einföld útgáfa af venjulegum handbolta, ALLIR GETA VERIÐ MEÐ.
Fimm eru saman í liði en mega vera fleiri því fjöldi varamanna má vera frá 0 og upp í 5.
Strandhandbolti er orðinn gríðalega vinsæll um allan heim og er meðal keppnisgrein á Ólympíuleikum.
https://www.youtube.com/watch?v=aF7wFqVXDhg
Einar Guðmundsson íþróttastjóri HSÍ hefur umsjón með keppninni.