Íslensku ungmennalandsliðin í handknattleik, U-15 og U-17, mættu landsliðum Færeyja í heljarmikilli handboltaveislu í Laugardalshöll um nýliðna helgi. Þetta voru fyrstu opinberu landsleikir U-15 liðanna og atburðurinn því sögulegur. Liðin léku alls átta leiki og unnu íslensku liðin sex þeirra, en þau færeysku tvo.
Úrslit leikjanna um helgina:
Laugardagur 16.maí:
Ísland 31-19 Færeyjar U-15 karla
Ísland 34-16 Færeyjar U-17 karla
Ísland 25-23 Færeyjar U-15 kvenna
Ísland 25-37 Færeyjar U-17 kvenna
Sunnudagur 17.maí:
Ísland 23-26 Færeyjar U-15 kvenna
Ísland 27-20 Færeyjar U-17 kvenna
Ísland 33-18 Færeyjar U-15 karla
Ísland 44-20 Færeyjar U-17 karla