Olísdeild karla | Fyrirkomulag úrslitakeppni
Úrslitakeppni Olísdeildar karla hefst í kvöld og er hún leikin með nýju sniði þetta árið vegna þeirra miklu samkomutakmarkanna sem verið í gildi hér á landi í vetur.
Leiknir eru tveir leikir heima og heiman í hverri umferð þar sem efra liðið í Olísdeildinni á heimaleikinn í síðari leik liðanna. Farið eftir sömu reglum og í Evrópukeppnum og má lesa nánar um það hér fyrir neðan en textinn er tekinn úr reglugerð um sérstök atvik.
Reglugerð um sérstök atvik
2. grein
Vinningsröð liða ef miða á við Evrópukeppnisfyrirkomulag
1. Stigasöfnun
Lið vinnur sér inn stig sem hér segir:
a) sigur, 2 stig
b) jafntefli, 1 stig
c) tap, 0 stig
2. Vinningsröð liða
Stigahærra liðið eftir tvo leiki í keppninni heldur áfram. Ef liðin hafa jafnmörg stig eftir tvo leiki (ath ekki skal leikin framlenging), skal vinningsröð liða ákveðin í þessari röð:
a) markamismunur
b) fleiri mörk skoruð á útivelli
c) vítakastkeppni
Farið skal eftir leikreglum HSÍ og IHF um framkvæmd vítakastkeppni.
Hlekkur á reglugerðina: https://www.hsi.is/wp-content/uploads/2020/10/Reglugerd-um-serstok-atvik-1.pdf
Fyrstu leikirnir í úrslitakeppni Olísdeildar karla fara fram í dag og á morgun og má sjá leikjaplanið hér:
mán. 31. maí
kl. 18:00 ÍBV – FH Vestmannaeyjar
kl. 19:40 Afturelding – Haukar Íþróttam. Varmá
þri. 01. júní
18:00 KA – Valur KA heimilið
20:00 Stjarnan – Selfoss TM Höllin