Grótta vann Stjörnuna í kvöld í frábærum handboltaleik í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi.
Það var Grótta sem leiddi nánast allan leikinn en Stjörnukonur neituðu að leggja árar í bát og í lok venjulegs leiktíma stóðu leikar jafnir, 25-25.
Aftur var jafnt eftir framlengingu, 25-25. Það var ekki fyrr en eftir tvær framlengingar að Grótta tryggði sér sigur í leiknum 32-31.
Mörk Gróttu:
Lovísa Thompson 7, Unnur Ómarsdóttir 7, Sunna María Einarsdóttir 5, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 5, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 3, Edda Þórunn Þórarinsdóttir 2, Emma Havin Sardardóttir 2, Anna Katrín Stefánsdóttir 1.
Mörk Stjörnunnar:
Helena Rut Örvarsdóttir 12, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 7, Rakel Dögg Bragadóttir 3, Stefanía Theodórsdóttir 3, Sólveig Lára Kjærnested 3, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2, Brynhildur Kjartansdóttir 1.