Íslensku strákarnir unnu í dag góðan sigur á Rússum 40-36, eftir að hafa verið undir 17-20 í hálfleik. Vörnin var léleg í fyrri hálfleik og áttu Rússar auðvelt með að komast í gegn um hana. Frábær vörn og markvarsla Grétars Guðjónssonar í byrjun seinni hálfleiks snéri leiknum okkur í hag, hraðaupphlaupin gengu frábærlega og var íslenska liðið komið 5 mörkum yfir miðjan hálfleikinn. Liðið náði síðan að halda því forskoti allt til leiksloka og vinna öruggan sigur.
Markaskorarar Íslands:
Ómar Magnússon
11
Hákon Daði Styrmisson
6
Leonharð Harðarson
6
Egill Magnússon
4
Óðinn Ríkharðsson
4
Arnar Freyr Arnarsson
3
Dagur Arnarsson 2
Kristján Kristjánsson
2
Aron Dagur Pálsson
1
Henrik Bjarnason
1
Grétar Guðjónsson varði 11 bolta
Ísland mætir Makedóníu á morgun kl. 11 og sigur í þeim leik kemur okkur í góða stöðu varðandi keppnina um 9.-10.sætið en þau sæti gefa þátttökurétt á HM á næsta ári.