Ísland verður í C riðli á HM í Katar í janúar ásamt Frakklandi, Svíþjóð, Algeríu, Tékklandi og Egyptalandi.
Ef miðað er við leikjaplan sem IHF hefur áður gefið út mun Ísland hefja leik þann 16. janúar nk. gegn Svíþjóð.
Leikir Íslands verða:
16. janúar, Ísland – Svíþjóð
18. janúar, Ísland – Alsír
20. janúar, Ísland – Frakkland
22. janúar, Ísland – Tékkland
24. janúar, Ísland – Egyptaland
Fjögur efstu liðin fara svo í milliriðil og mæta þar liðum úr D riðli en þar leika Danmörk, Þýskaland, Pólland, Rússland, Argentína og Sádí Arabía.