Íslensku strákarnir í U19 ára landsliðinu töpuði fyrir Þjóðverjum í leik um 9.sætið á heimsmeistaramótinu í Georgíu, lokatölur 26-37 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 14-21 Þjóðverjum í vil. Þjóðverjar voru sterkari allan tímann og íslensku strákarnir höfðu ekki orku til að ógna þeim að ráði. Það er því hlutskipti liðsins að hafna í 10. sæti á heimsmeistaramótinu, þeir unnu fimm leiki og töpuðu tveimur.
Birgir Már Birgisson var valinn maður leiksins í íslenska liðinu en hann skoraði 5 mörk.
Mörk Íslands:
Teitur Örn Einarsson 6, Bjarni Valdimarsson 5, Birgir Már Birgisson 5, Hannes Grimm 4, Örn Östenberg 2, Kristófer Dagur Sigurðsson 2, Sveinn Brynjar Agnarsson 1 og Orri Freyr Þorkelsson 1.
Viktor Hallgrímsson varði 12 skot
Andri Scheving varði 3 skot