Handknattleikssamband Íslands hefur ráðið tvo þjálfara í annars vel skipaðan þjálfarahóp sambandsins.
Gunnar Magnússon hefur verið ráðinn yfirþjálfari yngri landsliða. Gunnar er öllu handknattleiksáhugafólki kunnugur enda hefur hann náð framúrskarandi árangri með félagsliðum sínum í gegnum árin. Gunnar er starfandi þjálfari meistaraflokks karla hjá Haukum sem og að vera aðstoðarþjálfari A-liðs karla.
Einar Andri Einarsson hefur verið ráðinn þjálfari U-21 árs og B landsliðs karla auk þess að koma inn í þjálfarateymi A landsliðs karla. Einar hefur náð eftirtektaverðum árangri sem þjálfari meistarflokks FH á árum áður og einnig sem núverandi þjálfara meistaraflokks Aftureldingar.
HSÍ býður þá Gunnar og Einar Andra hjartanlega velkomna til starfa og hlakkar til að vinna náið með þeim í framtíðinni.