Laugardaginn 29. febrúar útskrifuðust 23 þjálfarar með Master Coach gráðuna. Námið þeirra hófst í byrjun árs 2019 og var námið unnið í samvinnu við HR og EHF en Master Coach gráðan er æðsta gráða í alþjóðlegum handbolta. Var þetta í fyrsta skiptið sem boðið var upp á námið á Íslandi og vill HSÍ þakka HR og EHF fyrir samstarfið.
Þær Díana Guðjónsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir eru fyrstu konurnar á Íslandi til að ná sér í þessa æðstu gráðu handboltans.
HSÍ óskar eftirfarandi þjálfurum til hamingju með útskriftina:
Ágúst Jóhannsson
Arnar Gunnarsson
Arnar Pétursson
Díana Guðjónsdóttir
Einar Andri Einarsson
Einar Guðmundsson
Elías Már Halldórsson
Erlingur Richardsson
Guðmundur Helgi Pálsson
Gunnar Gunnarsson
Gunnar Magnússon
Halldór Jóhann Sigfússon
Heimir Ríkarðsson
Hrafnhildur Skúladóttir
Jónatan Þór Magnússon
Kristinn Björgúlfsson
Kristján Svan Kristjánsson
Óskar Bjarni Óskarsson
Rúnar Sigtryggsson
Sebastian Alexandersson
Sigursteinn Arndal
Stefán Arnarson
Stefán Árnason