Aron Kristjánsson hefur valið 17 manna hóp sem fer til Noregs og keppir þar í Gulldeildinni.
Töluverð forföll hafa komið upp undanfarna daga; Snorri Steinn Guðjónsson þurfti að snúa aftur til Frakklands og getur ekki verið með. Þeir Vignir Svavarsson og Bjarki Már Gunnarsson eru báðir meiddir og ekki leikfærir. Þá sitja þeir Arnór Þór Gunnarsson, Janus Daði Smárason og Hreiðar Levý Guðmundsson eftir heima í þetta skiptið.
Leikir Íslands í Golden League eru:
Fimmtudagur 5. nóvember Noregur – Ísland
kl.18.45 í Nadderud Arena, Oslo
Laugardagur 7. nóvember
Frakkland – Ísland
kl.14.45 í Nadderud Arena, Osló
Sunnudagur 8. nóvmeber
Ísland – Danmörk
kl. 19.30 í Nadderud Arena, Osló
Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson, Álaborg
Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarson, Fram
Arnór Atlason, St.Raphel
Aron Pálmarson, MKB Veszprem
Ásgeir Örn Hallgrímsson, USAM Nimes
Bjarki Már Elísson, Fuche Berlin
Guðjón Valur Sigurðsson, Barcelona
Guðmundur Árni Ólafsson, Mors-Thy
Guðmundur Hólmar Helgason, Valur
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV
Ólafur Bjarki Ragnarsson, Eisenach
Pétur Júníusson, Afturelding
Róbert Gunnarsson, Paris Handball
Rúnar Kárason, TSV Hannover-Burgdorf
Tandri Már Konráðsson, Ricoh
Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV