Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari hefur valið þá 16 leikmenn sem fara til Finnlands, til að leika í riðlakeppninni fyrir EM 2014.
Liðið heldur af stað í fyrramálið til Finnlands en liðin munu mætast í Karjaa á miðvikudaginn kl 16 að íslenskum tíma. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV.
Hópurinn er eftirfarandi:
Markmenn:
Dröfn Haraldsdóttir, ÍBV
Íris Björk Símonardóttir, Grótta
Aðrir leikmenn:
Arna Sif Pálsdóttir, SK Aarhus
Birna Berg Haraldsdóttir, Sävehof
Brynja Magnúsdóttir, Flint Tönsberg
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan
Hildigunnur Einarsdóttir, Tertnes
Hildur Þorgeirsdóttir, Koblenz
Karen Knútsdóttir, Sønderjyske
Karólína Lárudóttir, Valur
Ramune Pekarskyte, Sønderjyske
Sandra Sif Sigurjónsdóttir, Stjarnan
Steinunn Hansdóttir, Skanderborg
Sunna Jónsdóttir, BK Heid
Unnur Ómarsdóttir, Grótta
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Våg Vipers
Þrír leikmenn verða eftir hér heima og koma saman við liðið á föstudag fyrir leikinn á móti Slóvakíu sem verður á sunnudaginn 15. júní í Laugardalshöllinni, en það eru:
Jóna Margrét Ragnarsdóttir, Stjarnan
Marthe Sördal, Fram
Melkorka Mist Gunnarsdóttir, Fylkir.