Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari hefur valið 16 manna landsliðshóp fyrir umspilsleikinn gegn Bosníu nk. laugardag.
Liðið heldur af stað í fyrramálið til Bosníu en liðin munu mætast í Sarajevo á laugardaginn kl.18.15 að íslenskum tíma. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Síðari leikur liðanna verður svo leikinn í Laugardalshöll, sunnudaginn 15.júní kl.17.00.
Hópurinn er eftirfarandi:
Markmenn:
Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club
Sveinbjörn Pétursson, Aue
Aðrir leikmenn:
Alexander Petersson, Rhein-Neckar Löwen
Arnór Atlason, St. Raphael
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Paris Handball
Bjarki Már Elísson, Eisenach
Bjarki Már Gunnarsson, Aue
Guðjón Valur Sigurðsson, THW Kiel
Gunnar Steinn Jónsson, Nantes
Ólafur Andrés Guðmundsson, Kristianstadt
Róbert Gunnarsson, Paris Handball
Snorri Steinn Guðjónsson, GOG
Sverre Andreas Jakobsson, TV Grosswallstadt
Vignir Svavarsson, TWD Minden
Þórir Ólafsson, KS Vive Targi Kielce
Fjórir leikmenn verða eftir hér heima um helgina og koma saman við liðið í næstu viku en það eru:
Daníel Freyr Andrésson, FH
Aron Pálmarsson, Kiel
Heimir Óli Heimisson, Guif
Stefán Rafn Sigurmannsson, Rhein-Neckar Löwen