Handboltaskóli HSÍ hefur verið starfræktur í 21 ár með góðum árangri.
Í ár verður hann helgina 30.maí til 1. júní og gert er ráð fyrir yfir 160 krökkum sem munu æfa undir stjórn landsliðsþjálfara HSÍ.
Handboltaskólinn verður á höfuðborgarsvæðinu og fyrirkomulagið verður þannig að það verður æfing seinnipartinn 30.maí, tvær æfingar 31.maí og ein æfing 1.júní. Landsliðsmenn og konur munu koma í heimsókn.
Piltar fæddir 2000; Hvert félag sendir 4 leikmenn fædda á því ári og þessum hóp er síðan skipt í hópa eftir því hvaða stöður leikmennirnir spila.
Stúlkur fæddar 2000; Hvert félag sendir 4 leikmenn fædda á því ári og þessum hóp er síðan skipt í hópa eftir því hvaða stöður leikmennirnir spila.
Mjög áríðandi er að félög tilnefni ekki fleiri en 4 pilta og 4 stúlkur. Á þessu hefur verið misbrestur og skapaði það mikla óánægju.
Við viljum því biðja félögin um að senda inn lista með nöfnum þeirra sem hafa verið valdir í því félagi á arnistef@hsi.is fyrir mánudaginn 19.maí.
Það sem þarf að koma fram er fullt nafn, kennitala, félag, staða, stærð á bol og e-mail.
Tímasetningar og staðsetning verður send út til allra mánudaginn 19.maí.