Mættir voru Gunnar K. Gunnarsson, Vala Valtýsdóttir og Einar Sveinsson. Eftirtalin mál lágu fyrir fundinum og voru afgreidd:
1. Kristín Guðmundsdóttir leikmaður Vals fékk útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannslegrar framkomu gagnvart dómurum eftir leik Vals og HK í M.fl.kv. 07.03.2014. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
2. Heiðar Þór Aðalsteinsson leikmaður Hamrana fékk útilokun með skýrslu vegna brots í leik Selfoss og Hamrana í M.fl.ka. 07.03.2014. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
3. Alex Viktor Ragnarsson leikmaður Gróttu fékk útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannslegrar framkomu gagnvart dómurum eftir leik Gróttu og Aftureldingar í 2.fl.ka. 10.03.2014. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í tveggja leikj bann að teknu tilliti til ítrekunaráhrifa.
Önnnur mál lágu ekki fyrir
Gunnar K. Gunnarsson, formaður