U-16 ára landslið karla er að fara að taka þátt í alþjóðlegu móti í Dzierzoniow í Póllandi þar sem liðið mun keppa við Pólland, Noreg og Ungverjaland.
Mættir voru Gunnar K. Gunnarsson, Vala Valtýsdóttir og Einar Sveinsson. Eftirtalin mál lágu fyrir fundinum og voru afgreidd:
Handhafar A aðgönguskírteina HSÍ sem ætla á landsleiki Íslands og Austurríki um helgina geta nálgast miða á leikinn nk.miðvikudag milli kl.11 og 13 á skrifstofu HSÍ.
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði fyrir Frakklandi 24:19, í undankeppni Evrópumótsins en leikið var í Frakklandi í dag. Íslenska liðið byrjaði leikinn vel og var með yfirhöndina í fyrri hálfleik. Karen Knútsdóttir stýrði sóknarleiknum og skoraði sjö mörk í fyrri hálfleik einum, en að honum loknum hafði íslenska liðið þriggja marka forskot, 13:10.
Í dag mætast Valur 101 og Víkingur í úrslitaleik utandeildar karla. Leikið verður í Víkinni og hefst leikurinn kl.15.00.
57. Ársþing Handknattleikssambands Íslands verður haldið miðvikudaginn 30.apríl 2014. Staðsetning verður send út síðar. Skráning þingfulltrúa hefst miðvikudaginn 30.apríl 2014 kl.16:00 og verður þingsetning sama dag kl. 17:00.
Ísland og Slóvakía mætast í undankeppni EM kvenna.
Ísland og Finnland mætast í Finnlandi í undankeppni EM.
Ísland og Bosnía mætast í síðari leik liðanna í umspili fyrir HM.
Ísland mætir Bosníu í fyrri leik liðanna í undankeppni HM.
Ísland og Austurríki mætast í vináttulandsleik í Ólafsvík.
Líkt og áður í vetur eru dómarar og eftirlitsmenn frá Íslandi á faraldsfæti þessa dagana. Eins og áður hefur komið fram eru þeir A nton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson staddir í Túnis þar sem þeir dæma í Arabíukeppni félagsliða karla en mótinu líkur nú um helgina.
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari hefur valið 21 manna æfingarhóp fyrir landsleikina tvo gegn Austurríki í næstu viku. Liðið mun koma saman til æfinga á Íslandi mánudaginn 31.mars.
Franska landsliðið í handknattleik lagði það íslenska, 27:21, í fyrri leik þjóðanna í öðrum riðli undankeppni Evrópumeistaramótsins í handknattleik í Laugardalshöll í kvöld. Frakkar voru með yfirhöndina allan leikinn og höfðu fjögurra marka forskot í hálfleik, 15:11.
Mættir voru Gunnar K. Gunnarsson, Vala Valtýsdóttir og Einar Sveinsson. Eftirtalin mál lágu fyrir fundinum og voru afgreidd:
Ísland mætir Frakklandi í undankeppni fyrir EM kvenna í kvöld. Leikið er í Laugardalshöll og hefst leikurinn kl.19.30. Leikurinn er í beinni útsendingu á RÚV.
Í kvöld hefjast æfingar hjá u-16 ára landsliði kvenna. Æfingaplanið má sjá hér að neðan.
Um helgina lauk keppni í Olís deild kvenna þegar lokaumferðin fór fram og varð um leið endanlega ljóst hvaða lið mætast í 8 liða úrslitum en úrslitakeppnin hefst 6.apríl nk.
Vegna ófærðar frá Akureyri hefur verið ákveðið að fresta leik Vals og KA/Þór sem fram átti að fara í dag í Olís deild kvenna. Nýr leiktími er á morgun sunnudag kl.15.30 í Vodafone Höllinni.
Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari A landsliðs kvenna hefur þurft að gera tvær breytingar á landsliðshóp Íslands fyrir leikina gegn Frakklandi nú í mars. Hanna G. Stefánsdóttir og Florentina Stanciu leikmenn Stjörnunnar hafa þurft að draga sig úr landsliðshóp Íslands vegna meiðsla. Ágúst hefur því valið þær Marthe Sördal úr Fram og Dröfn Haraldsdóttir úr ÍBV í þeirra stað.
Fyrsta æfing u-20 ára landsliðs kvenna verður nk. mánudag kl.20.00 í Kaplakrika. Mun æfingin byrja á fundi og verður svo farið í sal.
Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari A landsliðs kvenna hefur þurft að gera tvær breytingar á landsliðshóp Íslands fyrir leikina gegn Frakklandi nú í mars. Hanna G. Stefánsdóttir og Florentina Stanciu leikmenn Stjörnunnar hafa þurft að draga sig úr landsliðshóp Íslands vegna meiðsla. Ágúst hefur því valið þær Marthe Sördal úr Fram og Dröfn Haraldsdóttir úr ÍBV í þeirra stað.
Vegna ófærðar milli Reykjavíkur og Akureyrar hefur verið ákveðið að fresta leik Akureyrar og Vals í Olís deild karla sem fram átti að fara í kvöld. Leikurinn hefur verið settur á, á morgun, laugardag kl.16.00 í KA heimilinu.
Þrír leikir fara fram í Olís deild karla í kvöld. Klukkan 19.30 mætast í Vestmannaeyjum ÍBV og HK og á Ásvöllum Haukar og ÍR. Klukkan 20.00 hefst svo leikur Fram og FH en leikurinn er sýndur beint á RÚV Íþróttir.
Vegna ófærðar milli Reykjavíkur og Akureyrar hefur verið ákveðið að fresta leik Akureyrar og Vals í Olís deild karla sem fram átti að fara í kvöld. Leikurinn hefur verið settur á, á morgun, föstudag kl.19.00 í KA heimilinu.
Mættir voru Gunnar K. Gunnarsson, Vala Valtýsdóttir og Einar Sveinsson. Eftirtalin mál lágu fyrir fundinum og voru afgreidd:
Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna hefur valið 16 manna leikmannahóp fyrir leiki í undankeppni EM gegn Frökkum nú í mars. Ísland er það í riðli ásamt Frakklandi, Finnlandi og Slóvakíu. Leikið verður hér heima miðvikudaginn 26. mars n.k. 19.30 í Laugardalshöll en síðan fer liðið til Frakklands og leikur þar laugardaginn 29. mars kl 16.30 (að íslenskum tíma).
Valinn hefur verið æfingahópur U-16 ára landsliðs kvenna sem mun æfa saman dagana 24.-30.mars.
Valinn hefur verið æfingahópur fyrir U-18 ára landslið kvenna sem mun æfa saman dagana 24.-30.mars.
Mættir voru Gunnar K. Gunnarsson, Vala Valtýsdóttir og Einar Sveinsson. Eftirtalin mál lágu fyrir fundinum og voru afgreidd:
Valinn hefur verið 16 manna lokahópur U-20 ára landsliðs kvenna. Um páskana, 18.-20.apríl, mun liðið leika hér á Íslandi í undanriðli ásamt Úkraínu, Rúmeníu og Slóveníu. Tvö efstu liðin í riðlinum tryggja sér sæti í lokakeppni HM sem fram fer í Króatíu í sumar.
Heil umferð fer fram í Olís deild karla í kvöld. Leikur Hauka og FH verður sýndur beint á RÚV Íþróttir.
Valinn hefur verið landsliðshópur hjá U-18 ára landsliði karla, sem mun leika þrjá æfingaleiki við Dani í Danmörku dagana 4.-6.apríl.
Valur varð í kvöld Coca Cola bikarmeistarar 2.flokks karla þegar liðið bar sigurorð af Aftureldingu 34-33 í æsispennandi framlengdum leik. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 29-29 en í hálfleik leiddi Valur 16-12.
Selfoss varð í kvöld Coca Cola bikarmeistarar 3.flokks karla þegar liðið bar sigurorð af Fram 27-24 í úrslitaleik í Laugardalshöll. Staðan í hálfleik var 15-12 Selfoss í vil.
Framstúlkur urðu í dag bikarmeistarar 3.flokks kvenna þegar liðið sigraði ÍBV 23-22 í æsispennandi leik en sigurmark Fram kom 5 sekúndum fyrir leikslok. Staðan í hálfleik var 12-11 fyrir Fram.
ÍBV var í dag bikarmeistari4.flokks karla eldri en liðið sigraði ÍR örugglega í úrslitaleik 27-17. Staðan í hálfleik var 12-8 ÍBV í vil.
Framstúlkur urðu í dag Coca Cola bikarmeistarar 4.flokks kvenna eldra árs eftir öruggan sigur á KA/Þór 21-13 í úrslitaleik í Laugardalshöll. Staðan í hálfleik var 12-4 Fram í vil.
FH varð í dag Coca Cola bikarmeistarar 4.flokks karla yngri þegar liðið bar sigurorð af Haukum 18-13 í úrslitaleik í Laugardalshöll. Staðan í hálfleik var 8-7 Haukum í vil.
ÍBV varð í dag Coca Cola Bikarmeistarar 4.flokks kvenna yngri þegar liðið sigraði KA//Þór í framlengdum úrslitaleik 23-22. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 18-18 en ÍBV leiddi í hálfleik 10-9.
Bikarveislan heldur áfram í dag þegar bikarúrslitaleikir yngri flokka í Coca Cola bikarnum fara fram. 7 leikir eru á dagskrá og eru þeir allir sýndir beint á www.sporttv.is.
Haukar eru bikarmeistarar karla 2014 eftir 22-21 sigur á ÍR í rosalegum úrslitaleik í Laugardalshöll í dag. Leikurinn var æsispennandi allan tíman en ÍR fékk síðustu sókn leiksins til að jafna metin.
Valur er bikarmeistari kvenna í handknattleik eftir sigur á Stjörnunni í úrslitaleik í Laugardalshöllinni í dag. Lokatölur eftir mikinn spennuleik voru 24:19 og er þetta þriðji bikarmeistaratitill Valskvenna í röð. Leikurinn var gríðarlega jafn í fyrri hálfleik. Leikmenn beggja liða voru nokkuð stressaðir í byrjun og liðin skiptust á að hafa forystuna. Einu sinni munaði tveimur mörkum á liðunum en staðan í hálfleik var 10:9 fyrir Stjörnuna.
Það verða Haukar og ÍR sem mætast í úrslitum Coca Cola bikars karla en undanúrslitaleikirnir fóru fram í kvöld.
Valinn hefur verið landsliðshópur hjá U-16 ára landsliði karla, sem mun taka þátt í æfingamóti sem fer fram í Póllandi dagana 4.-6.apríl. Einnig mun liðið spila tvo æfingaleiki við unglingalið Fusche-Berlin í ferðinni.
Það verða Stjarnan og Valur sem leika til úrslita í Coca Cola bikar kvenna á laugardaginn en liðið sigruðu nú í kvöld sína leiki í undanúrslitum.
Í kvöld fara fram undanúrslitaleikir Coca Cola bikars kvenna. Klukkan 17.15 hefst fyrri leikur kvöldsins en í honum mætast Stjarnan og Grótta. Leikurinn verður sýndur beint í heild sinni á RÚV.
Mættir voru Gunnar K. Gunnarsson, Vala Valtýsdóttir og Einar Sveinsson. Eftirtalin mál lágu fyrir fundinum og voru afgreidd:
Hér að neðan má sjá leikjaplan yngri flokka í úrslitum Coca Cola bikarsins. Allir leikirnir verða sýndir beint á www.sporttv.is.
Handknattleiksdeild ÍR óskar eftir að ráða metnaðarfullan þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna. Stefnan er sett á Olís deild kvenna í haust . Markmiðið er að fá fyrrum ÍR stelpur til að koma heim og styrkja þann frábæra hóp sem fyrir er.