Strákarnir okkar töpuðu fyrir Tékkum 27-24 í kaflaskiptum leik í Brno í Tékklandi í dag.
Í dag mæta strákarnir okkar Tékkum í afar mikilvægum leik í undankeppni EM.
Í gærkvöldi hélt u-15 ára landslið drengja af stað til Álaborgar í Danmörku en þar verður liðið við æfingar og keppni næstu vikuna.
Handhafar A aðgönguskírteina HSÍ sem ætla á landsleik Íslands og Úkraínu í undankeppni EM geta nálgast miða á leikinn fimmtudaginn 15.júní milli kl.11 og 13 á skrifstofu HSÍ.
U-15 ára landslið kvenna fór í æfingaferð til Akueyrar um hvítasunnuhelgina og æfði við frábærar aðstæður í KA heimilinu.
Geir Sveinsson landsliðsþjálfari hefur valið þá 17 leikmenn sem halda til Tékklands í dag en Ísland leikur gegn Tékklandi í undankeppni EM á miðvikudaginn.
A landslið karla vann góðan þriggja marka sigur á Pólverjum í dag á Gjensedige Cup í Elverum í Noregi.
Ísland tapaði í kvöld fyrir Noregi 36-30 í fyrsta leik liðsins á Gjensidige Cup sem fram fer um helgina í Elverum í Noregi.
HSÍ leitar að metnaðarfullum einstaklingum til að taka þátt í öflugu starfi sambandsins.
Axel Stefánsson hefur kallað tvo leikmenn inn í leikmannahóp A landsliðs kvenna.
Handboltaskóli HSÍ hefur verið starfræktur í 24 ár með góðum árangri.
Heimir Ríkarðsson hefur valið tvo hópa fyrir verkefni sumarsins en liðið tekur þátt í European Open í Svíþjóð í byrjun júlí og Ólympíuhátið Evrópuæskunnar í lok júlí. Sitthvor hópurinn verður sendur á mótin með von um að skapa sem mesta breidd í aldurshópnum.
Haraldur Þorvarðarson og Sigurgeir Jónsson hafa valið 26 stúlkur til æfinga 12. – 30. júní, en æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir EM sem fer fram í Makedóníu í ágúst.
Geir Sveinsson landsliðsþjálfari hefur valið þá 28 leikmenn sem koma til greina fyrir leikina gegn Tékkum og Úkraínu í undankeppni EM nú í júní.
Karlalandsliðið tekur á móti Úkraínu sunnudaginn 18. júní kl. 18.45 í Laugardalshöll.
Vegna meiðsla hefur Stefán Rafn Sigurmannsson leikmaður Álaborgar þurft að draga sig úr landsliðshópi Íslands.
Þjálfaranámskeið HSÍ halda áfram helgina 9. – 11. júní með námskeiðum á 1 .- 3. stigi.
Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari, hefur valið leikmannahópinn fyrir Gjensedige Cup sem fram fer í Noregi (Elverum) dagana 8. – 11. júní 2017.
U-17 ára landslið kvenna gerði í dag jafntefli við sterkt lið Póllands í Kwidzyn í Póllandi. Lokatölur urðu 24-24.
Stelpurnar okkkar spiluðu fyrri vináttu leik sinn við Pólland í Kwitzyn í dag. Niðurstaðan varð sjö marka tap 32-25 eftir kafalskiptan leik.
Axel Stefánsson þjálfari A-landsliðs kvenna hefur valið 22 leikmenn til að taka þátt í æfingum í Reykjavik 6. – 18. júní 2017.
Á lokahófi HSÍ sem fram fór í gærkvöldi var tilkynnt um það hvaða leikmenn hafa skarað framúr í vetur.
Yngri hópur u-15 ára landsliðs drengja æfir næstkomandi helgi í íþróttahúsinu að Varmá, Mosfellsbæ.
Í kvöld fer fram lokahóf HSÍ í Gullhömrum í Grafarholti.
Bjarni Fritzson, þjálfari u-19 ára landsliðs karla hefur valið æfingahóp fyrir sumarið 2017.
Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á FH í oddaleik í Kaplakrika fyrr í dag.
Í dag kl.16.00 mætast FH og Valur í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil Olís deildar karla.
Heimir Ríkarðsson hefur valið æfingahóp fyrir u-17 ára landslið karla en liðið æfir 24. – 26. maí.
Sigursteinn Arndal og Ólafur Stefánsson hafa valið 23 leikmenn til undirbúnings fyrir HM u-21 árs liða sem fer fram í Alsír og hefst um miðjan júlí.
Úrskurður aganefndar þriðjudaginn 16.maí 2017
Valur og FH mætast í fjórða leik liðanna í Valshöllinni í kvöld kl. 20.00.
Kári Garðarsson hefur valið 23 stúlkur til æfinga helgina 9. – 11. júní, æfingarnar fara fram í Reykjavík.
Framstúlkur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld með sigri á Stjörnunni í fjórða leik liðanna.
Kvennalið Fram og Stjörnunnar mætast í 4. leik í Framhúsinu í kvöld kl.20.00.
Mótanefnd HSÍ hefur borist þátttökutilkynning frá 28 karlaliðum og 17 kvennaliðum fyrir keppnistímabilið 2017-2018.
Knattspyrnufélag Akureyrar (KA), Íþróttafélagið Þór (Þór) í samvinnu við Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) hafa komist að samkomulagi um lok á samstarfi félaganna á rekstri meistaraflokks karla í handknattleik.
Bjarni Fritzson þjálfari u-19 ára landsliðs karla hefur valið hóp til æfinga helgina 19. – 21. maí í Austurbergi.
Í kvöld tryggðu Vals stúlkur sér Íslandsmeistaratitilinn í 3.kv. eftir sigur á KA/Þór.
Framarar urðu í dag Íslandsmeistarar í 2. fl. karla eftir sigur á Víkingum.
Selfoss tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í 4. fl. ka. eldri með sigri á HK.
Það voru Fylkisstúlkur sem tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í 4.kv. yngri í dag með tveggja marka sigri á HK.
Í hádeginu tryggði Valur sér Íslandsmeistaratitilinn í 4.ka. yngri eftir mikinn spennutrylli þar sem bæði þurfti framleningu og vítakeppni til að fá úrslit.
FH varð í dag Íslandsmeistari í 4.kv. eldri eftir æsispennandi úrslitaleik gegn ÍR.
Haukar tryggðu sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í 3.ka. með eins marks sigri gegn Val í frábærum handboltaleik.
Maksim Akbashev hefur valið 35 drengi til æfinga helgina 26. – 28. maí. Æfingarnar fara fram á Reykjavíkursvæðinu.
Fram og Stjarnan leika sinn þriðja leik í úrslitaeinvígi Olís deildar kvenna.
Úrslitaleikir yngri flokka fara fram í Fylkishöll um næstu helgi.
Um síðastliðna helgi fór fram á Selfossi hið árlega Landsbankamót í handbolta, keppt er í 7. flokki drengja og stúlkna 10 ára og yngri.
Úrslit Olísdeildarinnar halda áfram í kvöld og nú er leikið bæði í karla og kvennaflokki.
Í hádeginu var dregið í riðla fyrir HM 21 árs landsliða sem fram fer í Alsír í júlí.