Ákveðið hefur verið að breyta dagssetningu á fyrirhuguðu B stigs dómaranámskeiði sem áttu að vera um helgina.
Námskeiðið verður haldið helgina 24.-25. Október nk. ef næg þátttaka fæst (lágmark 20). B-stig er miðstig dómararéttinda og gefur rétt til að dæma alla leiki nema leiki í meistaraflokki og 2. flokki karla, úrslitaleiki yngri flokka og bikarkeppni yngri flokka.
Skráning fer fram á robert@hsi.is og lýkur þriðjudaginn 21.október. Þátttakendur skulu taka fram við skráningu nafn, kennitölu, félag, e-mail og síma.