Úrskurður aganefndar 5. júní 2021
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Agnar Smári Jónsson leikmaður Vals hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Vals og KA í úrslitakeppni Olís deildar karla þann 4.6.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafast frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.