Úrskurður aganefndar 5. nóvember 2021
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Þrándur Gíslason Roth leikmaður Aftureldingar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Aftureldingar og Vals í Coca Cola bikar karla þann 1.10.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur jafnframt athygli á stighækkandi áhrifum leikbanna, skv. 1. mgr. 11. gr. sömu reglugerðar.
- Jón Bjarni Ólafsson leikmaður FH hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Selfoss og FH í Olís deild karla þann 28.09.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.