Úrskurður aganefndar 4. maí 2021
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Áki Hlynur Andrason leikmaður Vals U hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Hauka U og Valss U í Grilldeild karla þann 1.5.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 a). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Nökkvi Dan Elliðason leikmaður Selfoss hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik ÍBV og Selfoss í Olís deild karla þann 30.4.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 a). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.