Aganefnd HSÍ | Úrskurður 29.10. ’24

Úrskurður aganefndar 29. október 2024

Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:

  1. Hlynur Steinn Bogason leikmaður Mílunnar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik Mílunnar og Víðis í 2. deild karla þann 27.10.2024.  Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:9 f).  Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
  2. Orfeus Andreou leikmaður Víðis hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik Mílunnar og Víðis í 2. deild karla þann 27.10.2024.  Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar.
  3. Andri Finnsson leikmaður Vals hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar í leik Fram og Vals í Olís deild karla þann 25.10.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar.

Leikbönnin taka gildi 31.10.2024

Fleiri mál lágu ekki fyrir.

Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson