Úrskurður aganefndar 29. janúar 2019
Eftirtalin mál lágu fyrir og voru tekin til úrskurðar:
1.
Logi Snædal Jónsson leikmaður Víkings hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Víkings og Þróttar í mfl. ka. þann 28.01. 2019. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 a). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það því niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.