Úrskurður aganefndar 28. september 2021
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Tandri Már Konráðsson leikmaður Stjörnunar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Aftureldingar og Stjörnunar í Olís deild karla þann 17.9. 2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Elísabet Tinna Kjartansdóttir leikmaður Fjölnir/Fylkis hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Fjölnir/Fylkis og Selfoss í Grill66 deild kvenna þann 23.9. 2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 a). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Bergvin Þór Gíslason leikmaður Aftureldingu hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Aftureldingu og Hauka í Olís deild karla þann 24.9. 2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:9 f). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.