Úrskurður aganefndar 25. janúar 2022
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Eyþór Vestmann leikmaður Kórdrengjanna hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Fjölnis og Kórdrengjanna í Grill66 deild karla þann 20.01.2022. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Arnar Kormákur Friðriksson, Arnar Þór Sæþórsson og Sverrir Pálmason.