Úrskurður aganefndar 24. maí 2021
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
Filip Andonov leikmaður Kríu hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Kríu og Fjölnis í Umspili Olís deild karla þann 22.5.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.