Úrskurður aganefndar 21. Janúar 2025

Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:

  1. Susan Ines Barinas Gamboa leikmaður Aftureldingar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik KA/Þór og Aftureldingar í Grill 66 deild kvenna þann 18.01.2025. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 a). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
  2. Óli Hrannar Arnarsson leikmaður FH hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik FH og Stjörnunnar í 4.flokki karla þann 20.01.2025. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.

Fleiri mál lágu ekki fyrir.

Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson