Aganefnd HSÍ | Úrskurður 20.09. ’22
Úrskurður aganefndar 20. september 2022
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Sveinn Brynjar Agnarsson leikmaður ÍR hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik ÍR og Hauka í Olís deildar karla þann 15.09.2022. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Einar Ingi Hrafnsson leikmaður Aftureldingar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Afturelding og FH í Olís deildar karla þann 16.09.2022. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Arnar Kormákur Friðriksson, Ágúst Karl Karlsson og Sverrir Pálmason