Úrskurður aganefndar 16. mars 2021
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
Þorgeir Gunnarsson leikmaður Vals hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Hauka og Vals í Íslandsmóti 3. flokki karla 1. deild þann 9.3.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 c). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.