Úrskurður aganefndar 15. september 2021
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Igor Mrsulja leikmaður Gróttu hlaut útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannslegrar hegðunar í leik Gróttu – Stjarnan í Coca Cola bikar karla þann 9.9. 2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 d). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í tveggja leikja bann. Aganefnd vekur jafnframt athygli á stighækkandi áhrifum leikbanna, skv. 1. mgr. 11. gr. sömu reglugerðar.
- Patrekur Jóhannesson starfsmaður Stjörnuna hlaut útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannslegrar hegðunar í leik Gróttu – Stjarnan í Coca Cola bikar karla þann 9.9. 2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur jafnframt athygli á stighækkandi áhrifum leikbanna, skv. 1. mgr. 11. gr. sömu reglugerðar.
- Einar Sindri Ólafsson leikmaður Mílan hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Mílan og Fjölnir í Coca Cola bikar karla þann 10.9. 2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 a). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Elvar Þór Ólafsson leikmaður Fjölnis hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Mílan og Fjölnir í Coca Cola bikar karla þann 10.9. 2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 c). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Hafþór Vignisson leikmaður Stjörnuna hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Stjörnuna – KA í Coca Cola bikar karla þann 13.9. 2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Ísak Rafnsson leikmaður FH hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Hauka og FH í Coca Cola bikar karla þann 13.9. 2021.. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.