Úrskurður aganefndar þriðjudaginn 15.nóv. 2016.
Eftirtalin mál lágu fyrir og voru tekin til úrskurðar:
1. Eyþór Gíslason leikmaður ÍBV hlaut útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannslegrar framkomu gagnvart dómurum í leik FH og ÍBV í 4fl.ka. 12.11.2016. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
2. Ari Pétur Eiríksson leikmaður Gróttu hlaut útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannslegrar framkomu eftir leik Fram og Gróttu í 4fl.ka. 13.11.2016. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Gunnar K. Gunnarsson, Arnar Kormákur Friðriksson og Sverrir Pálmason.
Úrskurðurinn tekur gildi kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 17.nóv. 2016.