Aganefnd HSÍ | Úrskurður 15.02. ’22
Úrskurður aganefndar 15. febrúar 2022
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Veigur Már Harðarson leikmaður Fram U hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik HK U og Fram U í Grill 66 deild karla þann 12.02.2022. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Arnar Kormákur Friðriksson, Arnar Þór Sæþórsson og Sverrir Pálmason.