Úrskurður aganefndar 14. Janúar 2025
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Elín Ása Einarsdóttir leikmaður Berserkja hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik Fjölnis og Berserkja í Grill 66 deild kvenna þann 10.01.2025. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 c). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Rytis Kazakevicius leikmaður Stjörnunnar 2 hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik ÍH og Stjörnunnar 2 í 2. deild karla þann 10.01.2025. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Þórarinn Þórarinsson leikmaður ÍH hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik ÍH og Stjörnunnar 2 í 2. deild karla þann 10.01.2025. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Leikbönnin taka gildi 16.01.2025
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson