Úrskurður aganefndar 11. apríl 2024
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Benedikt Marinó Herdísarson leikmaður Stjörnunnnar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Aftureldingar og Stjörnunnar í úrslitakeppni Olís deildar karla þann10.04.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson