Úrskurður aganefndar 10. desember 2024

Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:

  1. Pétur Árni Hauksson leikmaður Stjörnunnar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik Stjörnunnar og ÍBV í Olís deild karla þann 6.12.2023. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
  2. Róbert Gunnarsson þjálfari Gróttu hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik Vals og Gróttu í Poweraid bikar karla þann 09.12.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að þjálfarinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar.

Leikbönnin taka gildi 12.12.2024

Fleiri mál lágu ekki fyrir.

Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson