Aganefnd HSÍ | Úrskurður 09.05. ’22
Úrskurður aganefndar 09. maí 2022
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Victor Máni Matthíasson leikmaður Fjölnis hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög grófs leikbrots í leik Fjölnis og ÍR í umspili Olís deildar karla þann 09.05.2022. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 b). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur jafnframt athygli á stighækkandi áhrifum leikbanna, skv. 1. mgr. 11. gr. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Arnar Kormákur Friðriksson, Sverrir Pálmason og Vala Valtýsdóttir.