Úrskurður aganefndar 07. desember 2023
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Úlfur Gunnar Kjartansson leikmaður Hauka hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklegrar hættulegrar aðgerðar í leik Hauka og Fram í Olís deild karla þann 30.11.2023. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 b). Á síðasta fundi aganefndar var málinu frestað um sólarhring og hkd. Hauka gefinn kostur á því að skila inn athugasemdum til skrifstofu HSÍ. Greinargerð barst ekki frá Haukum vegna málsins.
Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í þriggja leikja bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Leikbannið tekur gildi 07.12.2023
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson