Úrskurður aganefndar 3. desember 2024
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Gunnar Hrafn Pálsson leikmaður Gróttu hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar í leik KA og Gróttu í Olís deild karla þann 28.10.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 b). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Endijs Kusners leikmaður Harðar 2 hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik Harðar 2 og Vængja Júpiters í 2. deild karla þann 30.11.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar.
- Bragi Rúnar Axelsson starfsmaður Harðar 2 hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik Harðar 2 og Vængja Júpiters í 2. deild karla þann 30.11.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Er það mat aganefndar að brot starfsmannsins geti verðskuldað lengra bann en 1 leik. Mun aganefnd tilkynna skrifstofu HSÍ um málið, sbr. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar HSÍ um agamál.
Málinu er frestað um sólarhring með hliðsjón af 1. mgr. 3. gr. reglugerðar HSÍ um agamál.
Leikbönnin taka gildi 05.12.2024
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson